Að gefnu tilefni viljum við brýna fyrir iðkendum okkar að láta starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar geyma síma, skartgripi og fleiri verðmæti í afgreiðslunni. Því miður hefur borið á því að slíkir hlutir og fatnaður sé að hverfa úr búningsklefunum.
Jafnframt viljum við biðla til foreldra að vera vakandi fyrir því ef hlutir/fatnaður lendir óvart heim með barni ykkar og koma þeim þá til skila til starfsmanna hússins.
Einnig hefur borið á því að krakkar hafa farið í röngum skóm heim, auðveldara er að finna út úr ruglingnum ef skór eru vel merktir.
Starfsfólk FIMAK og íþróttamiðstövðarinnar