Um helgina fór fram Íslandsmót í þrepum í áhaldafimleikum í Laugarbóli hjá Ármenningum. Frá Fimleikafélagi Akureyrar kepptu 18 keppendur, 15 stelpur og 3 strákar. Þessir krakkar skiluðu stórglæsilegum árangri og komu norður með tvö gull og eitt silfur ásamt einum Íslandsmeistaratitli.
Á laugardeginum gerði Kristín Hrund Vatnsdal sér lítið fyrir og tryggði sér Íslandsmeistartitil í 2. þrepi kvenna. Frábær árangur sem hún náði undir leiðsögn þeirra Florin Paun og Mirela Paun. Til hamingju með Íslandsmeistarann.
Martha Mekkín Kristensen sigraði svo sinn aldursflokk í samanlögðu í 3. þrepi 13 ára og eldri einnig undir leiðsögn Florin og Mirela.
Á sunnudaginn lenti svo Ragnheiður Sara Steindórsdóttir í 2. sæti í sínum aldursflokki í 5. þrepi 9 ára ásamt því að vera í 2. sæti yfir heildina í 5. þrepi. Ragnheiður Sara æfir undir leiðsögn Jan Bogodoi og Mihaela Bogodoi.
Til hamingju öll með frábæran árangur um helgina.