Í júní verður boðið upp á tvö trampólín námskeið fyrir börn á aldrinum frá 6-14 ára (2009-2018) í fimleikahúsinu við Giljaskóla.
Fyrra námskeiðið er 4 dagar eftir hádegi 13:00 - 17:00 og seinna námskeiðið er 5 dagar eftir hádegi frá kl. 13:00 - 17:00.
Trampólínnámskeiðin verða haldin á eftirfarandi dagsetningum:
Vika 1: 18-21 júní. (4 dagar) kl. 13:00-17:00.
Vika 2: 24-28 júní (5 dagar) kl. 13:00 - 17:00.
Verð fyrir 5 daga námskeið er 15.000 kr. og 12.000 kr. fyrir 4 daga námskeið.
Á námskeiðunum verða þátttakendur þjálfaðir í trampólín íþróttinni. Þjálfunin er einstaklingsmiðuð og fer eftir getu og þroska hvers og eins þátttakanda.
Það verður farið í öryggisatriðið og undirstöðuatriði íþróttarinnar með öllum þáttakendum en eftir það miðast þjálfunin við hvern og einn.
Á námskeiðunum leggjum við upp með hvetjandi umhverfi, og munum haga þjálfuninni í samvinnu með þáttakendum frekar en að keyra stífan aga. Þátttakendur munu því hafa mikið persónulegt rými og stýra eigin þjálfunarhraða. Þó þurfa þátttakendur að hlusta á þjálfaran og fylgja þeim reglum sem þeim eru settar.
Athugið að trampólín námskeiðið er einskorðað við trampólínþjálfun og það verður ekki frjáls notkun á öðrum búnaði í fimleikahúsinu nema ef þjálfara leyfa slíkt.
Hverjum degi verður deilt upp á eftirfarandi hátt:
1: Upphitun
2: Þjálfun í trampólíni
3: Morgunkaffi
4: Létt upphitun/leikir
5: Þjálfun í trampólíni
6: Frjáls tími og leikir.
Þátttakendur þurfa að vera í þykkum íþróttasokkum á trampólínunum eða fimleikaskóm. Annars er engin formlega krafa um klæðnað annað en að fötin þurfa að vera laus við rennilása og annað dinglumdangl. Gott er að vera í síðum aðskornum íþróttabuxum og þunnum langermabol en það má gjarnan mæta í fimleikafötum, stuttbuxum og öðru slíku. Það verður líklega hlýtt í fimleikahúsinu svo að þykk föt verða líklega til trafala.
ATH að þáttakendur mega ekki vera með skartgripi eða úr þegar þú þjáfla trampólín.
Þátttakendur þurfa að taka með sér nesti fyrir kaffipásu og vatnsbrúsa.
Fjöldi þátttakenda miðast við 10 á hvoru námskeiði og einnig áskiljum við okkur rétt til þess að fella námskeiðið niður ef það verður ekki næg þátttaka.
Umsjón með námskeiðunum hefur Tómas og nánari upplýsingar er hægt að fá á tölvupóstfanginu
buchdal@gmail.com og á facebook síðunni
Trampólín á Akureyri.