Þið foreldrar og velunnarar FIMAK sem ætluðuð að vinna á mótinu um helgina fáið víst frí þar sem mótinu hefur verið frestað vegna veðurs. Það er von okkar að þið og fleiri til geti aðstoðað okkur þegar að ný dagsetning verður gefin út. Við komum til með að hefja vinnu við að manna mótið um leið og dagsetning er ljós.
Kærar kveðjur
Stjórn og starfsfólk FIMAK