Til iðkenda, foreldra og forráðmanna.

Til iðkenda, foreldra og forráðmanna. Að gefnu tilefni þá er iðkendum, foreldrum og forráðamönnum bent á að lesa reglur FA hér til hliðar.

Það er komin upp sú staða að borið hefur á kvörtunum frá foreldrum og einnig iðkendum vegna þess að sumir af okkar iðkendum eru að taka með sér vinkonur til að horfa á æfingar.

Þetta gengur því miður ekki upp og er bannað, þetta hefur truflandi áhrif á þá þjálfun sem fer fram í salnum. Vinsamlegast virði þessar reglur.

Takk fyrir

Stjórnin