Þjálfarar FIMAK sækja dómaranámskeið í áhaldafimleikum

í októberbyrjun sóttu 7 þjálfarar félagsins dómaranámskeið í áhaldafimleikum.  Það hefur lengi hallað á FIMAK hvað varðar dómara og félagið hefur ekki átt dómara í áhaldafimleikum kvenna í 4 ár.  Það gleður okkur því að geta sagt frá því að dómaramál í vetur eru í góðum málum því síðasta vetur sóttu 5 þjálfarar félagsins dómaranámskeið í Team Gym reglum í hópfimleikum og einn þjálfari sótti dómaranámskeið í áhaldafimleikum karla.