Tapað - fundið!

Tapað - fundið!


Fyrir nokkru síðan var peysa tekin í misgripum í búningsklefa. Í óskilamunum íþróttamiðstöðvarinnar liggja 2 peysur í stærðum 158 og 146 en peysan sem var tekin í misgripum er í stærð 152. Viljið þið vinsamlegast athuga hvort stúlkan ykkar sé í réttri peysu. ef peysan er hjá ykkur, endilega hafið samband við Kristínu í s. 893-9148.


Miðvikudaginn 28. okt voru Nike skór teknir í misgripum í forstofunni í Fimak á milli kl: 18:00 og 20:30.   Skórnir sem teknir voru eru eins og á myndinni, svartir Nike free 5.0 tr fit strigaskór nr 38 nýlegir og vel með farnir. Eins skór voru skildir eftir í skóhillunum en þeir eru númer 42.  Vinsamlegast athugið hvort skór í rangri stærð leynist heima hjá ykkur. Ef svo er má endilega hafa samband í s:840-6029 til að skipta.