Styrkur frá Norðurorku

Erla tekur við skjalinu fyrir hönd FIMAK
Erla tekur við skjalinu fyrir hönd FIMAK

Í gær, 21. júní fékk FIMAK afhentan styrk frá Norðurorku til þess að halda æfingabúðir í hópfimleikum í haust og fá hingað erlendan þjálfara til þess að kenna í æfingabúðunum. Styrkurinn var afhentur í gær við athöfn í húsakynnum Norðurorku.

Einnig er stefnt að því að nýta þennan þjálfara til þess að halda þjálfaranámskeið fyrir þjálfara FIMAK. Nú þegar vinnum við hörðum höndum að því að finna góðan kennara til þess að koma í heimsókn til okkar. Við þökkum Norðurorku kærlega fyrir styrkinn.