Stundaskrá haustönn 2014 - fyrstu drög

Nú eru fyrstu drög af stundaskrá fyrir haustönnina tilbúin. Athugið að laugardagshópar (S-hópar) hefjast ekki fyrr en 13.september og goldies og mix hefjast 15.september af óviðráðanlegum aðstæðum. Við glímum við þjálfaraskort en núverandi tafla er þannig uppsett að við þyrftum engum börnum að segja upp plássi, en enn á eftir að manna nokkrar stöður og vinnum við hörðum höndum að því að leysa þau mál. Við teljum engu að síður betra að byrja svona þó undirmönnuð séum. Athugið að um fyrstu drög er að ræða, stundatöflur þjálfara í MA eru ekki klárar og eins þarf stundum að hliðra til þegar starfið hefst. Við sendum inn upplýsingar um í hvaða hóp iðkandi er með tölvupósti.

Stundaskrá haustönn 2014, FYRSTU DRÖG