Skráning iðkenda, biðlistar og fleira

Af gefnu tilefni viljum við árétta að börn sem æfðu hjá okkur síðasta vetur og kláruðu veturinn eru áfram á skrá hjá félaginu. Ef einhver ætla að hætta nú þarf að skrá iðkandann úr félaginu með því að senda tölvupóst á skrifstofa@fimak.is.

Nýskráning iðkenda fer fram hér hægra megin á síðunni undir flipanum "skráning iðkenda". Þegar skráning er send inn kemur tilkynning um að skráning hafi heppnast og að viðkomandi sé kominn á biðlista. Við setjum okkur svo í samband við fólk um leið og við sjáum fram á að koma viðkomandi iðkanda í hóp hjá félaginu.