Skráðir iðkendur á vorönn 2016 eru sjálfkrafa skráðir áfram hjá okkur á haustönn 2016. Núna erum við í óða önn að skipuleggja starfsemi vetrarins og raða niður í hópa. Til þess að þessi vinna verði sem skilvirkust er nauðsynlegt fyrir okkur að fá að vita ef einhverjir iðkendur ætla EKKI að halda áfram að æfa hjá FIMAK næsta vetur.
Ef barnið þitt ætlar að HÆTTA í fimleikum og upplýsingar um það hafa ekki borist skrifstofu félagsins biðjum við þig um að tilkynna afskráningu með tölvupósti á netfangið skrifstofa@fimak.is fyrir 15.ágúst nk.
Stundatafla og verðskrá eru í vinnslu og verða sett á heimasíðuna þegar nær dregur. Skrifstofan verðu opin mánudaga til fimmtudaga frá 15. ágúst og út mánuðinn milli 14:00 og 16:00.