Einhver brögð eru af því að skór eru teknir í misgripum þarna úr þvögunni og upphefst þá mikið vandræða ástand og leit að þeim sem fór heim í vitlausum skóm. Til að leysa þetta geta foreldrar sent börnin á æfingu með poka sem þau setja skófatnað sinn í og hengja hann svo á snaga með fötunum sínum í búningsherbergjum. Leggjumst nú öll á eitt og leysum þetta vandamál og verum til fyrirmyndar.
Kveðja Stjórnin