Sjálfboðaliðar á Haustmót í áhaldafimleikum á vegum FSÍ

Okkur hjá Fimak langar að vekja athygli ykkar á að næstu helgi 4-6 nóvember verður haldið Haustmót áhalda á vegum FSÍ hér á Akureyri.Til þess að þessi viðburður sé mögulegur þurfum við aðstoð sjálfboðaliða.

Á heimasíðunni er skráningarform þar sem allir ættu að geta fundið tíma sem hentar um helgina við að aðstoða.Sent verður út vaktaplan á fimmtudagskvöld, þar verður tekið fram hvert hlutverk hvers og eins verður um helgina.Athugið að aldurstakmark er 13 ára.Með von um góð viðbrögð Mótanefnd og Foreldrafélag FIMAK.

Skráningarform fyrir sjálfboðaliða