Laugardaginn næsta, 20. október ætlar RÚV að sýna beint frá Evrópumótinu í hópfimleikum sem haldið er í Árósum í Danmörku. Ísland sendir að þessu sinni 4 lið til keppni, í kvennaflokki, blandað lið í fullorðinsflokki, stúlknalið og blandað lið í unglingaflokki.
Fyrri útsending RÚV verður kl. 08.30 og sú seinni hefst kl. 11.30.
Kvennaliðið á möguleika á að verja Evrópumeistaratitilinn og spennandi verður að sjá hvernig ungu krakkarnir standa sig.
Áfram Ísland!