Parkour Námskeið

Næstu viku (15.-18. ágúst) fer fram Parkour námskeið hjá okkur. Við höfum fengið til okkar Parkour þjálfara frá Danmörku, Tom Nyeng Möller. Tom mun sjá um námskeiðið ásamt þeim Stefáni Þór Friðrikssyni og Erni Haraldssyni

Tom er félagi í klúbbi sem kallar sig Team Ji Yo og er heimasíða klúbbsins www.teamjiyo.com. Einnig er hægt að finna upplýsingar um þá á facebook.

Kennt verður í 2 x 90 mínútur á dag, samtals 12 klst. Aldurstakmark er 10 ára (fæddir 2001 og fyrr) og skipt verður niður á námskeiðin eftir aldri.

Námskeiðið kostar 10.000kr.

Tímasetning æfinga kemur á heimasíðuna á sunnudagskvöld og í tölvupósti. Endilega fylgist með.

Skráning fer fram hér. Vinsamlegast athugið að það eru rangar dagsetningar í skráningarskjalinu, réttar dagsetningar eru 15.-18. ágúst.

Stjórn FIMAK