Starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar við Giljaskóla hafa nú sett alla óskilamuni fram í anddyrið. Við hvetjum foreldra/forráðamenn til þess að kíkja í kassana og athuga hvort börn þeirra eigi eitthvað þar. Kassarnir koma til með að standa þarna fram í miðjan júní mánuð en eftir það verða óskilamunir gefnir í Rauða Krossinn.