Helgina 9.-10. maí fór fram Mínervumót Bjarkanna. Að þessu sinni fóru 30 keppendur frá FIMAK á mótið og keptu þar í 6. og 5.þrepi íslenska fimleikastigans. Um liðakeppni er að ræða og náðum við í 4 lið í 6.þrepinu, tvö í yngri flokknum og tvö í eldri flokknum og eitt í 5.þrepi.
Liðunum okkar gekk mjög vel á mótinu, tvö liðin komu með silfur heim og eitt með brons. Til hamingju með mótið stelpur.