Laugardagshópar - áhorf og lok annar

Góðan daginn

Nú fer að líða að lokum vorannarinnar hjá laugardagshópunum. Síðasta æfing annarinnar verður laugardaginn 9. maí næstkomandi.

Næsta laugardag, 2. maí verður ekki áhorfstími, heldur verður hann í lokatímanum, þann 9. maí.

Um leið og við þökkum fyrir veturinn, vonum við að þið eigið notalegt sumar og að við sjáumst hress í haust. Hyggist barnið ykkar ekki halda áfram iðkun hjá FIMAK þarf að tilkynna úrsögn skriflega á netfangið skrifstofa@fimak.is .

Bestu kveðjur

Stjórn og starfsfólk FIMAK.