Kjör á íþróttamanni Akureyrar 2015

Í gærkvöldi fór fram kjör Íþróttamanns Akureyrar 2015 í Hofi. Okkar fulltrúi, Auður Anna Jónasdóttir tók við viðurkenningu frá ÍBA.

Einnig veitti Akureyrarbær viðurkenningar til þeirra íþróttafélaga sem eignuðust íslandsmeistara og/eða landsliðsfólk á árinu 2015. Eftirtalin urðu íslandsmeistarar 2015 fyrir hönd FIMAK; Auður Anna Jónasdóttir, Björn Þórleifsson, Embla Dögg Sævarsdóttir, Emilía Björk Jóhannsdóttir, Jóhann Gunnar Finnsson og María Björg Ingvarsdóttir.

Til hamingju öll !

Að lokum var Viktor Samúelsson, Kraflyftingafélagi Akureyrar kjörinn íþróttamaður Akureyrar og óskum við honum innilega til hamingju með titilinnn og frábæran árangur 2015.