Kæru foreldrar og iðkendur.

Hún var 2,1 kg og 46 cm. og fæddist eftir 32 vikna meðgöngu. Mæðgunum heilsast báðum nokkuð vel miða við aðstæður. Þetta hefur að sjálfsögðu þær afleiðingar að Ionela er byrjuð í fæðingarorlofi talsvert fyrr en gert var ráð fyrir og því er hugsanlegt að starfið hjá hennar hópum raskist eitthvað.Við munum þó reyna að ráða fram úr þessu eftir bestu getu og með sem minnstum áhrifum á þjálfun iðkenda og starf félagsins.Við óskum að þessu verði sýndur allur sá skilningur sem svona aðstæður verðskulda. Við sendum að sjálfsögðu nýbökuðum foreldrum og dóttur þeirra okkar bestu kveðjur með vonum um að allt gangi vel.Að lokum langar okkur að minna á að þeir sem eru aflögufærir með ungbarnadót eða föt, sem getur komið fjölskyldunni vel eru vinsamlega beðnir að hafa samband við stjórnina. Takk fyrir Stjórnin.