Jólafrí, 18 desember

Síðasti æfingardagur fyrir jól er föstudagurinn 18. desember nk. P5 sem æfir eingöngu á laugardögum fær þó sína æfingu og verður hún milli 10:30 og 12:00  laugardaginn 19.desember.
FIMAK óskar iðkendum sínum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og þökkum samstarfið á árinu sem er að líða. Starfið hjá okkur hefst 4. janúar skv. stundatöflu. Jafnframt viljum við vekja athygli á því að stundataflan getur tekið breytingum í janúar þar sem stundatöflur þjálfara geta breyst.