Íþróttamaður Fimleikafélags Akureyrar

Næstkomandi mánudag verður íþróttamaður Fimleikafélags Akureyrar krýndur.  Athöfnin fer fram í fimleikahúsinu kl. 18. Hvetjum alla áhugasama til að mæta og fygjast með. Íþróttamaður FIMAK fer sem fulltrúi okkar í valið um íþróttamann Akureyrar sem fram fer næstkomandi miðvikudag.  Vakin er athygli á nýjum reglum við krýningu Íþróttamanns Akureyrar sem samþykktar voru á þingi ÍBA 2016.


Hlökkum til að sjá ykkur