Laugardaginn 5. mars fór fram Íslandsmót í þrepum í áhaldafimleikum. Fimleikafélag Akureyrar átti tvo keppendur á mótinu þau Guðrúnu Jónu Þrastardóttir og Jón Smára Hansson sem bæði kepptu í 3. þrepi. Það er gaman að segja frá því að Jón Smári lenti í 2. sæti á stökki. Stjórn Fimleikafélagsins óskar þeim til hamingju með þennan áfanga og Jóni til hamingju með að ná öðrum besta árangri á stökki.
Hægt er að sjá nánar um úrslit mótsins hér.