Í upphaf annar

Sæl og gleðilegt árið

 

Núna eru æfingar byrjaðar á fullu hjá okkur samkvæmt stundarskrá. Engar breytingar hafa verið gerðar á stundarskrá en hugsanlegt er að við þurfum að gera þær þegar þjálfara okkar fá nýjar stundartöflur í skólunum sínum.

 


Nokkrir hlutir sem okkur langar að árétta  í byrjun starfsárs.
-Búið er að forskrá alla iðkendur 6 ára og eldri í þá hópa sem þeir æfa í.  Foreldra geta því gengið frá æfingargjöldum núna, sjá nánar hérna
-Eftir 12. janúar verða æfingargjöld þeirra iðkenda sem ekki hafa verið skráð í Nori handskrá inn í Nori kerfið samkvæmt mætingarlistum.  FIMAK áskilur sér rétt til að setja æfingargjöldin á einn greiðsluseðil og bætist þá við seðilgjald og/eða annar umsýlsukostnaður ef bakfæra þarf reikning.
-Hérna er að finna æfingareglur FIMAK
-Áhorfsvika er fyrsta vika í hverjum mánuði.  Alltaf má horfa á æfingar í gegnum glerið
-Opnunartíma skrifstofu má sjá hérna.
-Viðtalstími yfirþjálfara er alla miðvikudaga milli 17:00 og 17:30. Á öðrum tímum er hægt að ná á honum í gsm: 823 0235 og florin@fimak.is
-Ekki er leyfanlegt að taka myndir eða myndbönd inn í sal nema með leyfi þjálfara.
- Það væri gott ef foreldra myndu minna börn sín á að nota skóhillur eða setja skó upp við vegg.  Einnig að minna á að hjólin/hlaupahjólin eiga ekki að vera beint fyrir utan hurðina.  þetta er sérstaklega mikilvægt ef að í húsinu verður slys að hægt sé ganga um hurð og anddyri.

 

-Nokkuð hefur borið á því að iðkendur séu að koma nokkuð mikið fyrir æfingu og að þvælast um húsið s.s. í búningsklefa og í fimleikasal. Starfsfólk íþróttahússins er fáliðað og á erfitt með að halda uppi  eftirliti með slíkum hópum. Því er mælst til þess að iðkendur komi rétt fyrir æfingu og sé ekki í húsinu að óþörfu.  Þeir sem þurfa að bíða fyrir eða eftir æfingu mælumst við til  að þau bíði aðeins í  anddyri hússins.

 

-Mikilvægt er að þegar börnum ykkar er keyrt á æfingar og eins þegar sótt er að leggja EKKI FYRIR FRAMAN ANDDYRIÐ, það skapar mikla hættu fyrir aðra iðkendur sem eru að koma eða fara.Vinsamlegast notið bílastæðin.

Um von um gott samstarf í vetur
Rut Jónsdóttir framkvæmdastjóri FIMAK