Hópar og biðlistar 2015

Fullt er í alla hópa hjá FIMAK nema Goldies (fullorðinsfimleika). Hægt er að skrá á biðlista í alla hópa í gegnum heimasíðu FIMAK.

Um leið og pláss losnar þá bjóðum við næsta inn af biðlista og tökum inn í þeirri röð sem skráning berst. Við getum ekki upplýst um hvenær einstaka barn kemst inn í hóp því það fer alfarið eftir því hvort og hvenær pláss losna í hópunum.

Foreldrar barna fædd  2010 og 2011 sem voru að æfa  á laugardögum í vor svo og foreldrar barna fædd 2012 eiga að hafa fengið póst frá okkur varðandi staðfestingu á skráningu. Ganga þarf frá skráningu fyrir 25. ágúst næstkomandi. Hafi barnið ekki verið skráð fyrir þann tíma er litið svo á að barnið hyggist ekki taka plássið og því úthlutað til næsta barns sem er á biðlista. Einnig langar okkur að biðla til ykkar, ef þið hafið nú þegar tekið þá ákvörðun að vera ekki með að láta okkur vita sem fyrst, svo við getum úthlutað plássinu.

Hafi pósturinn að einhverjum orsökum ekki borist ykkur þá vinsamlega hafið samband á skrifstofa@fimak.is

Starfsfólk FIMAK