Um helgina fór fram seinni hluti Haustmóts FSÍ hér á Akureyri. Keppt var í 3-.5. þrepi íslenska fimleikastigans í áhaldafimleikum bæði í stúlkna- og drengjaflokki. Mikið fjör var í fimleikahúsinu okkar allan laugardaginn fram á kvöld og allan sunnudaginn en mótinu lauk rétt fyrir kl. 16. Margir mjög efnilegir fimleikaiðkendur reyndu fyrir sér á mótinu og gaman verður að fylgjast með þessum krökkum í framtíðinni og þau eiga án efa eftir að ná langt í vaxandi íþrótt sem fimleikarnir eru. Úrslit helgarinnar er að finna hér að neðan.