Helgina 21.-23. október 2011 fór fram hjá fimleikafélaginu Björk haustmót FSÍ í áhaldafimleikum í 1. og 2. þrepi drengja og stúlkna. Einn af okkar fremstu iðkendum tók þar þátt í 2. þrepi 13 ára og eldri stúlkna. Guðrún Jóna Þrastardóttir stóð sig frábærlega á mótinu þar sem hún hafnaði í 2. sæti bæði á stökki og jafnvægisslá. Til hamingju með árangurinn Guðrún.
Nánari úrslit má sjá hér
Stjórn FIMAK