Starfið hjá FIMAK hefst 31. ágúst. Fyrstu drög af stundartöflu verður gefið út í næstu viku sem og hópaskipan. Skrifstofan verður opin í ágúst frá kl. 14 -16 mánudaga til fimmtudaga.
Athugið að margir þjálfarar okkar eru í framhaldsskólum og bíðum við eftir stundatöflu þeirra til þess að geta sett upp okkar stundartöflur. Þegar við fáum upplýsingar um stundatöflur þjálfara úr VMA setjum við upp fyrstu drög en þar sem MA krakkarnir fá sína svo seint þá getur þurft að gera breytingar á stundatöflu okkar þegar þau fá sína.
Foreldra barna í laugardagshópum eru búin að fá pósta varðandi æfingar í vetur. Við minnum á að ganga þarf frá skráningu fyrir 25.ágúst næstkomandi.
Starfsfólk FIMAK