Gjöf Fimak til Jólaaðstoðar

Á dögunum færði FIMAK þeim sem standa að Jólaaðstoðinni hér á svæðinu peningagjöf sem kom í stað þess að gefa starfsfólki jólagjöf. 
Stjórn FIMAK fannst þetta tilvalið og er myndin tekin í húsakynnum Rauða krossins við afhendingu en Sigríður M. Jóhannsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar tók við gjöfinni frá formanni félagsins.

Annars óskum við öllu okkar starfsfólki, iðkendum og foreldrum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

fh Stjórnar
Hermann Herbertsson, formaður.