Krafa fyrir fyrsta hluta æfingagjalda haustannar ætti nú að hafa borist skráðum greiðendum í netbanka.Æfingagjöldum haustannar er skipt niður í þrjár greiðslur og var þetta fyrsti þriðjungur. Við eigum í einhverjum vandræðum með tölvukerfið og í einstaka tilfellum kemur öll upphæðin á þennan greiðsluseðil. Ég vil biðja þá einstaklinga sem verða við þessum óþægindum að senda mér tilkynningu á erla@fimak.is og leiðrétti ég það strax á mánudaginn.
Einnig verður því þannig háttað að tómstundaávísanir sem skrifstofunni hefur borist koma til lækkunar á kröfu númer 2 og 3.
Af sparnaðar og umhverfis ástæðum ákváðum við að senda ekki út reikninga og greiðsluseðla. Allir geta að sjálfsögðu nálgast reikningana fyrir æfingagjöldunum á skrifstofu félagsins eða óskað eftir að fá þá senda með tölvupósti. Þau ykkar sem ekki hafið aðgang að netbanka biðjum við um að setja sig í samband við skrifstofuna og nálgast nauðsynlegar upplýsingar til að ganga frá greiðslum á æfingagjöldunum.
Skrifstofa félagsins verður opin sem hér segir í næstu viku, 3.sept.- 7.sept.:
Mán: 13.00-17.00
Þri: 08.00-12.00 og 16.00-18.00
Mið: 13.00-16.00
Fim: 13.00-16.00
Fös: 08.00-12.00
Ath. Að greiðslur vegna Goldies hafa ekki verið sendar út.
Starfsfólk skrifstofu FIMAK