Fimleikafélag Akureyrar býður þjálfurum félagsins, iðkendum keppnishópa og foreldrum þeirra upp á fyrirlestur um nauðsynlega næringu íþróttafólks. Fyrirlesturinn fer fram sunnudaginn 11. mars 2012 kl. 10.30 í anddyrinu að Borgum (við Háskólann á Akureyri).
Fyrirlesari er Fríða Rún Þórðardóttir næringarfræðingur/íþróttanæringarfræðingur. Við hvetjum keppniskrakka okkar og foreldra þeirra sérstaklega til þess að mæta.
Fríða Rún lærði næringaráðgjöf í University of Georgia í Bandaríkjunum og lauk þar BS og MS prófi 1993 og 1996 og er því útskrifaður næringarráðgjafi og næringarfræðingur. Hún er einnig ISSA og Life Fitness einkaþjálfari og hefur sérhæft sig í íþróttanæringafræði.
Skráning fer fram á þessari vefslóð:
https://docs.google.com/spreadsheet/viewform?formkey=dE9ycFR1ZHZ3WC1GQkJuU0Q4M0dzZGc6MQ