Frábær árangur FA á tveimur mótum um helgina

Annað liðið á Mínervumótinu var að taka þátt á sínu fyrsta móti utan Akureyrar og var því spenningurinn mikill. Það hefur ekki nokkrum manni dulist sá sá mikli árangur sem iðkendur FA hafa verið að ná á mótum í vetur. Ber það glögglega þess merki hve mikill uppagangur er í starfi félagsins, þar er unnið ómetanlegt starf  af þeim fjölmörgu aðilum sem koma að skipulagnigu móta og undirbuningi iðkenda hjá félaginu.Starfinu þennan veturinn er langt frá því að vera lokið eftir er að halda vorsýningu félagsins og slútti hjá laugardagshópum félagsins. Eitt innanhús mót er eftir og verður það að öllum líkindum fyrstu helgina í Maí. Einnig er á planinu að setja á laggirnar sumarnámskið fyrir þá sem hafa áhuga. Þannig að eins og staðan er í dag þá er nóg að gerast hjá félaginu.