Foreldranámskeið í reglum og æfingum í áhaldafimleikum kvenna og karla.

Nú höfum við ákveðið að bjóða uppá námskeið fyrir foreldra og aðra áhugasama um dómarareglur í áhaldafimleikum sem og að fara í gegnum helstu æfingarnar á hverju áhaldi fyrir sig.

Námskeiðið fer fram þriðjudaginn 2.febrúar kl. 20.00 í Giljaskóla. Kennarar eru þær Erla Ormarsdóttir og Karen Hrönn Vatnsdal, sem báðar hafa þjálfað áhaldafimleika og eru með e-dómararéttindi í áhaldafimleikum kvenna. Námskeiðsgjald er kr. 2.000,- á mann, en fyrir par kostar kr. 3.000,-. Ekki verður posi á staðnum. Allur ágóði af námskeiðinu rennur í ferðasjóð keppnishópanna sem eru á leið í æfingabúðir til London í vor og Ollerup í sumar.

Á námskeiðinu verða keppnisreglurnar í áhaldafimleikum kvenna og karla útskýrðar. Farið verður yfir hvað D-einkunn er og hvað E-einkunn er, farið verður yfir hvert áhald fyrir sig og fjallað um helstu frádráttarpunkta dómaranna á þeim. Einnig munum við fara yfir allar helstu æfingar sem krakkarnir okkar eru að framkvæma. Ef tími gefst til verður líka fjallað um þróun greinarinnar í gegnum tíðina. Um miðjan febrúar er svo stefnt að samskonar námskeiði í reglum hópfimleika.

Með von um að sjá sem flesta, Erla og Karen