Flestar ljósmyndir komnar, DVD diskar berast í þar næstu viku

Lang flestar ljósmyndir sem pantaðar voru eru komnar. Hægt verður að nálgast myndirnar hingað í íþróttamiðstöðina við Giljaskóla í dag föstudag kl. 12-13.30 og kl. 16-18. Í næstu viku verður hægt að nálgast myndir þriðjudag-föstudag kl. 12.30-14.00.


DVD myndirnar eru ekki tilbúnar enn. N4 reiknar með að afhending verði í þar næstu viku, vikunni 4.-8. júní. Tímasetningar verða auglýstar þegar við höfum fengið diskana.

Við minnum á að okkur vantar sjálfboðaliða í vinnu í kvöld við að taka niður áhöld fyrir alþrif á húsinu. Þeim sem eiga möguleika á að aðstoða okkur mega gjarnan melda sig með tölvupósti á erla@fimak.is