FIMAK óskar eftir starfsmanni í 50% vinnu á skrifstofu

FIMAK óskar eftir starfsmanni í 50% starf á skrifstofu.

Starf og ábyrgðarsvið
-Færsla bókhalds og afstemming þess
-Utanumhald iðkendaskráningar og innheimta æfingargjalda
-Símsvörun og önnur tilfallandi verkefni
-Vörusala og samskipti við birgja


Hæfniskröfur
-Góð almenn tölvukunnátta
-Reynsla af bókhaldsstörfum skilyrði
-Þekking og reynsla af DK bókhaldskerfinu nauðsynleg
-Þekking á NORI kerfinu kostur
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
-Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum


Viðkomandi þarf að geta hafið störf í nóvember
Umsóknafrestur er til 3. nóvember nk.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Rut, framkvæmdastjóri FIMAK, í síma 862 4988
Umsóknir skal senda á netfangið rut@fimak.is