Fimleikafélag Akureyrar er að leita að yfirþjálfurum í hópfimleikum og áhaldafimleikum drengja.
FIMAK er ört stækkandi félag með um 800 iðkendur innan sinna raða, æfingaraðstaðan er mjög góð og starfsandinn sömuleiðis. Félagið leggur mikla áherslu á að gera starfsfólki sýnu kleift að sækja sér menntun sem nýtist starfinu og býður samkeppnishæf laun.
Yfirþjálfari í hópfimleikum hefur yfirumsjón með keppnishópum í hópfimleikum ásamt því að þjálfa hópa og vinnur náið með yfirþjálfara félagsins, öðrum þjálfurum í hópfimleikum og framkvæmdastjóra. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með reynslu af hópfimleikum og hefur áhuga á að móta starfið með okkur. Starfshlutfallið er 100% (eða minna eftir samkomulagi) og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 20. ágúst næstkomandi. Allar nánari upplýsingar má fá hjá Erlu Ormars. s. 848-7350 eða með tölvupósti á erla@fimak.is.
Yfirþjálfari í áhaldafimleikm drengja hefur umsjón með grunn og keppnishópum drengja hjá félaginu sem og að þjálfa lengst komna keppnishóp félagsins. Við leitum að kraftmiklum einstaklingi sem á auðvelt með að vinna sjálfstætt eða í hóp, hefur áhuga á að byggja upp áhaldafimleika drengja á Akureyri og móta starfið með okkur. Viðkomandi kemur til með að vinna náið með yfirþjálfara félagsins, öllum þjálfurum sem koma að strákaþjálfuninni og framkvæmdastjóra. Starfshlutfallið er 50-100% eða eftir samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 20.ágúst næstkomandi. Allar nánari upplýsingar má fá hjá Erlu Ormars. S. 848-7350 eða með tölvupósti á erla@fimak.is
FIMAK getur einnig bætt við sig fleiri þjálfurum í grunnhópum stúlkna og drengja.
Umsóknir óskast sendar á erla@fimak.is.