Þar sem veðurspá á sunnudaginn er tvísýn viljum við láta vita af því að farastjórar og bílstjóri rútunnar meta hvort ráðlagt sé að keyra af stað á áætluðum tíma eða bíða veðrið af sér. Ef leiðin verður ófær þá verður hópnum ekki hent út úr skólanum heldur fáum við að gista aukanótt þar. Vonandi rætist spáin ekki en allavegana verður staðan metin og treystir félagið farastjórum og bílstjóra til taka ákvörðun með það.