Í vetur erum við með keppnislið sem keppir í Team Gym reglum í hópfimleikum. Til að vera samkeppnishæf við félögin á suðurlandinu vantar okkur nýjan Team Gym dans. Við sóttum um styrk til Norðurorku í sumar þar sem við óskum eftir stuðning til að fá til okkar þjálfara í hópfimleikum. Styrkinn ætlum við að nota í kennslu á nýjum Team Gym dansi og höfum við fengið til okkar danskan danskennara Matte Svarrer. Hún kemur til okkkar milli jóla og nýárs og ætlar að kenna stelpunum í I-1 nýjan Team Gym dans. Kennt verður dagana 28. og 29. desember.
Stjórn og framkvæmdastjóri FIMAK