Hér má finna dagskrá fyrir Akureyrarfjör Landsbankans 2014. Ath. að búið er að breyta dagskrá á sunnudeginum (kl. 12.00).
Athugið að engar æfingar verða á föstudeginum 29.mars eða laugardeginum 30.mars vegna mótsins.
Við hvetjum þau börn sem eiga félagsgallann að mæta í honum og vera í honum í innmars (gerum samt ekki þá kröfu að krakkar eigi gallann). Þau börn sem eiga svo fimleikafatnað eru hvött til að keppa í þeim fatnaði, annars bara í þeim fötum sem þau nota á æfingum. Það er ætlast til að börn með sítt hár séu með teygju þannig að hárið sé ekki fyrir þeim.
FIMAK rukkar ekkert mótagjald af keppendum en aðgangseyrir að mótinu er kr. 500 fyrir 16 ára og eldri.
Með kveðju,
Starfsfólk og stjórn FIMAK