Bókin "Ég á mér draum" sem Fimleikasamband Íslands var að gefa út er nú komin í sölu á skrifstofu FIMAK. Bókin er 192 síður í lit, A4 brot og kostar 4.900 kr. Ég á mér draum fjallar um fimleika á Íslandi og er til að mynda öllum fimleikafélögum á íslandi gerð skil í henni sem og mörgu af íslensku afreksfólki í greininni.
Þetta er frábær jólagjöf fyrir hressa fimleikakrakka sem og allt áhugafólk um fimleika. Ef fólk vill taka frá bók er hægt að senda töluvpóst á netfangið erla@fimak.is.