Vegna fjölda fyrirspurna viljum við ítreka að það eru biðlistar í alla hópa hjá félaginu nema Goldies (fullorðinsfimleikar). Um leið og pláss losnar þá bjóðum við næsta inn af biðlista og tökum við inn í þeirri röð sem skráning berst. Það er í engum tilfellum hægt að framselja pláss barna sinna til vina og ættingja og allar skráningar fara í gegnum skráningarsíðuna okkar.
Við getum ekki upplýst um hvenær einstaka barn kemst inn í hóp því það fer alfarið eftir því hvort og hvenær pláss losna í hópunum.
Jafnframt viljum við benda á að sögusagnir um að tekið sé inn í parkour frá 7 ára aldri eru ekki réttar. Við bjóðum upp á parkour frá 10 ára aldri, það er tekið var inn af biðlistum börn fædd árið 2004 og eru krakkarnir teknir inn í þeirri röð sem skráningar berast okkur.
Ef þú hefur áhuga á að prófa fullorðinsfimleika (16 ára og eldri) má gjarnan hafa samband við skrifstofa@fimak.is.
Með kveðju,
Starfsfólk FIMAK