Biðlistar

Að gefnu tilefni viljum við taka það fram að hópar félagsins eru fullir eins og er. Börn sem æfðu hjá okkur á síðustu önn (kláruðu önnina) eru í forgang og halda sjálfkrafa plássi sínu. Eftir því sem losnar í hópunum fyllum við jafnóðum inn í hópana með börnum á biðlista og tökum við þau inn í þeirri röð sem skráningar bárust okkur. Skráningar fara eingöngu fram í gegnum flipann "skráning iðkenda" sem finna má hér á síðunni ofarlega til hægri.

Enn getum við bætt við fólki í goldies hópinn en að öðru leiti eru allir hópar fullir eins og er. Við hvetjum foreldra sem eiga börn á skrá hjá okkur en ætla sér ekki að nýta sér plássið að afskrá börn sín strax með tölvupósti á netfangið skrifstofa@fimak.is.