Áhorfsvika 1.-6.október

Í þessari viku 1.-6. Október er áhorfsvika hjá FIMAK.

Þá er foreldrum/aðstandendum velkomið að koma og horfa á æfingar hjá börnum sínum. Athugið að yngri systkini og vinir /vinkonur mega koma að horfa á en allir áhorfendur eiga að sitja í stúkunni eða á bekkjunum upp við vegginn, alls ekki leika í salnum.  Ef þeim fyrirmælum er ekki hlýtt mega þjálfarar vísa fólki/börnum úr salnum. Í fyrstu viku hvers mánaðar er áhorfsvika, þess á milli verða foreldrar að bíða frammi.

Þjálfarar FIMAK