Það hafa nokkrir haft samband vegna greiðsluseðils sem er á eindaga í dag 7.maí. Þessi krafa er þriðja og síðasta krafan fyrir vorönn 2012. Æfingagjöldum vorannar var skipt upp í 3 greiðslur, sú fyrsta var á eindaga í byrjun febrúar, önnur var á eindaga í byrjun mars og sú þriðja er með eindaga í dag (mistök áttu sér stað, upphaflega var lagt upp með að hún yrði á eindaga í apríl).