Í næstu viku fara fram alþrif á fimleiksalnum. Það þýðir það að við þurfum að taka nánast öll áhöldin niður og færa yfir í litla salinn. Við óskum eftir sjálfboðaliðum á föstudagskvöldið 25. maí kl. 19.30 til að aðstoða okkur við að taka niður áhöldin.
Það er í þágu allra iðkenda að alþrifin fari fram enda sest mikið ryk á loftbita og veggi hússins. Það er því von okkar að sem flestir sjái sér fært að mæta og aðstoða okkur við þetta.
Margar hendur vinna létt verk :)