Aðalfundur Fimleikafélags Akureyrar verður haldinn miðvikudaginn 28. mars. kl. 20:30 í Giljaskóla, stofum 202 og 203. Gengið er inn að norðan verðu og farið uppá aðra hæð.
.Fundarefni: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Skýrsla stjórnar. 3. Afgreiðsla reikninga og fjárhagsáætlun 4. Lagabreyting 5. Kosning stjórnar, Formaður, stjórn, varamenn 6. Framkvæmdastjóri kynntur til leiks 7. Erindi Mótanefndar 8. Erindi foreldrafélags 9. Önnur mál.
Við hvetjum foreldra og aðra sem láta málefni félagsins sig varða til þess að mæta á fundinn.
Það vantar fólk í trúnaðarstörf hjá félaginu, bæði stjórn, nefndir og ráð.
Stjórn félagsins