Í kvöld fór fram aðalfundur FIMAK í matsal Giljaskóla. Segja má að fundurinn hafi verið vel sóttur ef miðað er við síðustu ár en 28 sóttu fundinn . Fram fóru venjuleg aðalfundarstörf þar sem m.a. var kosið til nýrrar stjórnar. Fjölmargar fjörugar umræður sköpuðust á fundinum og margar flottar hugmyndir komu fram sem ný stjórn mun taka til skoðunar og jafnvel framkvæmdar.
Nýja stjórn skipa:
Inga Stella Pétursdóttir, formaður
Guðrún Vaka, meðstjórnandi
Agla Egilsson, meðstjórnandi
Hermann Herbertsson, meðstjórnandi
Rut Jónsdóttir, meðstjórnandi
Einar Þorsteinn Pálsson, meðstjórnandi
Álfheiður Svana Kristjánsdóttir, meðstjórnandi
Til vara:
Guðmundur Karl Jónsson
Valdís Rut Jósavinsdóttir
Takk fyrir komuna
Inga Stella, formaður FIMAK