Aðalfundur FIMAK

Aðalfundur Fimleikafélags Akureyrar fer fram miðvikudaginn 13. ágúst kl. 20:30 í matsal Giljaskóla.  Við hvetjum foreldra og aðra sem láta málefni félagsins sig varða til þess að mæta á fundinn.  Það vantar fólk í trúnaðarstörf hjá félaginu, stjórn, nefndir og ráð.

Efni fundarins:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar
  3. Afgreiðsla reikninga og fjárhagsáætlun
  4. Kosning formanns
  5. Kosning stjórnar
  6. Ákvörðun styrktarfélagsgjalda
  7. Önnur mál.

 

Stjórn FIMAK