Aðalfundur FIMAK 2016

Aðalfundur Fimleikafélags Akureyrar fer fram þriðjudaginn 14. júní kl. 21:00 í sal Giljaskóla.  Við hvetjum foreldra, þjálfara og aðra sem láta málefni félagsins sig varða til þess að mæta á fundinn.  Það vantar fólk í trúnaðarstörf hjá félaginu, stjórn, nefndir og ráð.

Efni fundarins:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar
  3. Afgreiðsla reikninga og fjárhagsáætlun
  4. Lagabreyting
  5. Kosning formanns
  6. Kosning stjórnar
  7. Ákvörðun styrktarfélagsgjalda
  8. Önnur mál.

 

Stjórn FIMAK