Opnunartími föstudaginn 21.12.2012

Nú eru vörurnar sem pantaðar voru loksins að streyma í hús. Hægt verður að nálgast þær á morgun á skrifstofu FIMAK á eftirfarandi tímum: 11.00-13.00 og 15.00-17.00.

Ef einhver sem á pantaðar vörur kemst ekki á þessum tíma má hafa samband við framkvæmdastjóra á erla@fimak.is og semja um annan afhendingartíma til að þetta komist til skila fyrir jól.

Ef einhverjir eiga eftir að redda jólagjöfum þá eigum við eitthvað til af fötum. Við eigum félagsbolina til í nokkrum stærðum og jafnframt eigum við nýju æfingabolina til í stærðum 116,122, 128, 134 og 158. Nýjar stuttbuxur í stíl við félags- og æfingabolina eigum við einnig til í stærðum 116, 122, 128, 134, 146 og 158. Við eigum líka til eitthvað af nýju strákabúningunum. Við erum með posa á skrifstofunni þannig að það er hægt að greiða með kortum.

Jólakveðja, 
Starfsfólk FIMAK